Hvað viltu láta gera? Bæta við íláti eða gámi við grenndarstöðvar svo hægt sé að losa sig við raftæki og spilliefni. Margir í miðborginni eru bíllausir og eiga því erfitt með að fara í Sorpu til að losa sig við slíkan úrgang og því væri þetta frábær þjónusta við þennan hóp. Hvers vegna viltu láta gera það? Til þess að auðvelda fólki að flokka en lifa jafnframt bíllausum lífsstíl. Spillivagninn er ágætur en það er flókið í daglegu lífi að fylgjast með umferð hans til þess að losa sig við slíkt.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til skrifstofu umhverfisgæða. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation